Það voru sorgleg tíðindi 2. júlí 2006 þegar félagi okkar, Heiddi, lést í bifhjólaslysi í Öræfasveit.
Heiddi, eins og hann var ævinlega kallaður, var á heimleið af landsmóti Snigla.
Heiðar var fæddur 15. mai 1954, uppalinn á Akureyri með bensín í æðum sér. Heiddi var afar hjálplegur öllum bifhólamönnum og alltaf stóð heimili hans opið öllum þeim sem komu á Akureyri. Ef Heiddi var beðinn um hjálp eða að taka eitthvað að sér, var hann alltaf fús til að gefa af sér í svoleiðis.
Ófáir landsmótsgestir af landsmótum Snigla hafa smakkað hans sérlöguðu Landsmótssúpu sem hann hefur eldað síðustu 20 ár á öllum landsmótum síðan 1987. Sennilega er ekki til sá Íslendingur sem hefur eldað ofan í eins marga mótorhjólamenn og Heiddi, en oft tók hann að sér að elda fyrir bæði götu og torfærumótorhjólamenn á hinum ýmsu uppákomum og ferðalögum hjólamanna.
Heiddi var eflaust einn reyndasti bifhjólamaður landsins og keppti í hinum ýmsu keppnum á mótorhjólum, og meðal annars var hann Íslandsmeistari í sandspyrnu og samkvæmt mínum heimildum hefur enginn náð að slá met hanns á mótorhjóli í sandspyrnu. Heiddi keppti í nokkur ár í Íslandsmótinu í meistaradeild í þolakstri og var ævinlega elsti keppandinn í þeim keppnum, en besti árangur hanns var 12. sæti á móti þeim bestu. Hann keppti líka á jeppa í torfæru og varð Íslandsmeistari í götubílaflokki 1985.
Árið 2004 tók Heiddi sig á og breytti um lífsstíl og fór í kjölfarið safna mótorhjólum fyrir alvöru og þegar hann lést átti hann 24 og hálft mótorhjól. Þessum hjólum er öllum haldið til og hefur Jói Rækja, frændi Heidda, tekið við og haldið áfram vinnu við hjólasafn Heidda. Þegar þetta er ritað eru yfir 30 hjól í þessu safni.
Eftir að Heiddi varð edrú var hann að hluta utangátta frá félögum sínum, sem forðuðust að hafa hann með í hjólaferðum og samkomum. Því var hann fljótur til þegar Kerúbar voru stofnaðir. Hann borgaði inntökugjaldið, og bað síðan um formlega inngöngu. Heiddi var mjög ánægður með þennan hóp. Hann til að mynda skapp frá Akureyri á fundi með okkur, og var alltaf með margar góðar hugmyndir um hvernig þessi klúbbur skuli vera og vaxa. Til dæmis að hindra menn ekki í að ganga inn. Því fleiri félagar, því fleiri aktívir félagar. Og ekki skyldi amast út í tegund og útlit bifhjóla félagsmanna, og hvort þeir færu hægt eða hratt yfir.
Heiddi var mikill hagleiksmaður. Gerði upp fjölda hjóla og smíðaði mikið. Eitt af hans frægari handverkum er líklegast Fallið. Þetta listaverk Heidda stendur við Varmahlíð og er til minningar um fórnarlömb bifhjólaslysa, en er það kaldhæðnislegt að listaverkasmiðurinn sjálfur sé orðin einn af fórnarlömbum bifhjólaslysa.