Kerúbar MC Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Fubar   
Föstudagur, 04 Júlí 2008 13:52


Kerúbar MC er fyrsti SoberRiders MC klúbburinn á Íslandi, stofnaður þann 11. september 2005.

Nafn klúbbsins okkar, Kerúbar, má rekja til Biblíunnar. Kerúbar eru verndarenglar, eins og lesa má í eftirfarandi texta :

Á engla er víða minnst í Biblíunni, eða ríflega 300 sinnum, og hafa þeir löngum verið snar þáttur í helgihaldi kirkjunnar, einkum þó meðal rétttrúnaðarmanna og kaþólskra. Gamla testamentið er að mestu ritað á hebresku en þegar menn tóku að snúa því á grísku á 2. öld f. Kr. var orðið malak (sendiboði, boðberi) þýtt sem aggelos. Í latneskri útgáfu varð það svo að angelus og af því er íslenska heitið dregið, engill.

Englar eru sagðir ósýnilegar himneskar verur, þjónar Guðs sem vinna í hans nafni. Þeir voru skapaðir af honum í upphafi og eru búnir skynsemi og frelsi. Lífssvið þeirra er eilífðin sjálf, ekki tíminn. Þeir vegsama Guð og vernda menn og dýr.

Stéttir engla eða gerðir eru margs konar. Í síðgyðingdóminum var farið að tala um níu flokka engla sem var skipað í virðingarröð sem oftast var þessi: Efstir voru serafar, þá kerúbar, síðan hásæti eða trónar, og eftir það herradómar, dyggðir, tignir, máttarvöld, erkienglar og loks „englar“. Kristnin erfði þessa röðun, en hún var komin í núverandi form á 5. eða 6. öld.

Kerúbar Side RockerKerúbar standa vörð um hásæti Guðs og einnig lífsins tré í Paradís. Óður þeirra er viska og speki. Þeir hafa tvo, fjóra eða sex vængi, stundum þakta augum. Gulldrifnar myndir þeirra skreyttu náðarstólinn í musterinu helga, hið allra helgasta, sáttmálsörkina (kistuna þar sem boðorðatöflurnar voru geymdar) og einnig fortjald þess (Síðari Kroníkubók 3: 14).
 
 
Hjá spámanninum Esekíel (1: 4-28) er að finna stórbrotnar lýsingar á kerúbum :
 

10Ásjónur þeirra litu svo út: Mannsandlit að framan, ljónsandlit hægra megin á þeim fjórum, nautsandlit vinstra megin á þeim fjórum og arnarandlit á þeim fjórum aftanvert. 11Og vængir þeirra voru þandir upp á við. Hver þeirra hafði tvo vængi, sem voru tengdir saman, og tvo vængi, sem huldu líkami þeirra. 12Og þær gengu hver fyrir sig beint af augum fram, þær gengu þangað, sem andinn vildi fara, þær snerust eigi við í göngunni.

13Milli veranna var að sjá sem eldsglæður brynnu. Það var eins og blys færu aftur og fram milli veranna, og bjarma lagði af eldinum og út frá eldinum gengu leiftur. 14Og verurnar hlupu fram og aftur eins og glampi af leiftri.

15Enn fremur sá ég, og sjá: Eitt hjól stóð á jörðinni hjá hverri af verunum fjórum. 16Og hjólin voru á að líta eins og þegar blikar á krýsolít, og öll fjögur voru þau samlík og þannig gjörð, sem eitt hjólið væri innan í öðru hjóli. 17Þau gengu til allra fjögurra hliða, þau snerust eigi, er þau gengu. 18Og hjólbaugar þeirra - þeir voru háir og ógurlegir - hjólbaugar þeirra voru alsettir augum allt umhverfis á þeim fjórum. 19Og þegar verurnar gengu, þá gengu og hjólin við hliðina á þeim, og þegar verurnar hófu sig frá jörðu, þá hófu og hjólin sig. 20Þangað sem andinn vildi fara, þangað gengu þær, og hjólin hófust upp samtímis þeim, því að andi veranna var í hjólunum. 21Þegar þær gengu, gengu þau einnig, þegar þær stóðu kyrrar, stóðu þau og kyrr, og þegar þær hófust frá jörðu, hófust og hjólin samtímis þeim, því að andi verunnar var í hjólunum.

22Uppi yfir höfðum veranna var því líkast sem hvelfing væri, blikandi sem kristall. Þandist hún út uppi yfir höfðum þeirra. 23Og undir hvelfingunni voru vængir þeirra út þandir hver á móti öðrum, og hver þeirra hafði tvo vængi, sem huldu líkami þeirra. 24Ég heyrði vængjaþyt þeirra, eins og nið mikilla vatna, sem þrumu hins Almáttka, er þær gengu, gnýrinn og hávaðinn var sem gnýr í herbúðum. Þegar þær stóðu kyrrar, létu þær vængina síga. 25En þytur var uppi yfir hvelfingunni, sem var yfir höfðum þeirra, þegar þær stóðu kyrrar, létu þær vængina síga.

 

Margir hafa séð út úr þessum texta Esekíels lýsingar á geimverum og ýmiss konar geimförum.

Fyrir okkur er þarna augljóslega verið að lýsa andlega upplýstum edrú mótorhjólatöffurum með hjálma, í leðri, skálmum og vestum, ásamt hjólum þeirra. Þessi texti er kristaltær fyrir okkur Laughing.

 

Síðast uppfært ( Sunnudagur, 03 Maí 2009 22:58 )